157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[21:28]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V) (andsvar):

Forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni sérstaklega fyrir að nefna farnetið vegna þess að ég var komin í algjöran mínus hér í hliðarsalnum yfir því að hafa ekki einu sinni talað um það í minni ræðu. Það hefur auðvitað verið bara mitt helsta hugðarefni seinustu mánuði, stundum er það kannski þannig að maður gleymir því sem stendur manni næst. En farnetið er klárlega eitt af stærstu verkefnunum sem við ættum að ráðast í og sameinumst um að fara í vegna þess að það kostar ekki það mikla fjármuni. Ég hef auðvitað líka átt samtöl bæði við ráðherra og aðra aðila um það hvort það sé ekki hægt að flýta þessu þó svo að það komi ekki til Kjalarnesvegarins, hvort það sé einhvern veginn hægt að finna eða kría út fjármuni til þess að tryggja þetta vegna þess að þetta er bara spurning um litlar upphæðir miðað við heildarsamhengi hlutanna. Það að tryggja fjarskipti á þessum svæðum er gríðarlegt öryggismál. Það eru klukkutímakaflar þar sem ekkert símasamband er og við verðum að ná betri tökum á þessu. — Ein mínúta er allt of lítill tími til að fara yfir farnetið. En ég held að í öllu falli þá munum við tryggja þetta, þetta mun alltaf koma eigi síðar en árið 2028 miðað við áætlunina. En ég vil gera allt sem ég get til að koma þessu á árið 2027.

(Forseti (BergÓ): Það voru 75 sekúndur í þessari mínútu.)