samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Maríu Rut Kristinsdóttur kærlega fyrir hennar ræðu og ég vil þakka enn og aftur fyrir ánægjulegt samstarf í nefndinni þótt svo sem áherslur séu stundum á köflum ólíkar, en það er allt í lagi. Mig langar að spyrja hv. þingmann í fyrra andsvari í fyrsta lagi: Er hv. þingmaður sammála því að næstu göng á eftir Fljótagöngum verði á Austurlandi? Þá er ég að tala um Fjarðarheiðargöng sem er búið að setja tæpan milljarð í að rannsaka.
Síðan langar mig að spyrja hv. þingmann að því að í innviðapeningunum, 6,3 milljörðunum sem koma kannski, eru 200 millj. kr. í hrunvarnir á Suðurfjarðavegi. Við fengum mjög ítarlega og myndræna hvatningu frá skólanefndum Stöðvarfjarðarskóla og Breiðdalsskóla sem sýnir svart á hvítu að það er ekki boðlegt að láta börn keyra um þessar skriður á hverjum degi þar sem er stórgrýti, mörg tonn, og snjóflóð og aurflóð á hverju ári. Mun hv. þingmaður sem formaður samgöngunefndar tryggja að (Forseti hringir.) ef þessir peningar koma ekki frá innviðafélaginu þá komi þessir peningar í skriðuvarnirnar líka? Þessar tvær spurningar.