157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[21:31]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V) (andsvar):

Forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og prýðisgóðar og áhugaverðar og erfiðar spurningar. Ég ætla aðeins að tala fyrst um skriðuvarnirnar vegna þess að það voru auðvitað mjög sláandi myndir sem við fengum í hv. umhverfis- og samgöngunefnd þar sem aðstæður þarna blöstu við og ég fór nú um þetta svæði í kjördæmavikunni síðustu, við fórum, allur þingflokkur Viðreisnar, saman og maður fann það alveg á íbúum og það skipti ekki máli hvaða fundi við áttum, það var alltaf sagt: Sko, mikið vona ég að þið mætið stórum bílum á morgun, til þess að maður fyndi raunverulega fyrir því á hvaða stað þessi vegur er. Þannig að jú, ég mun alla vega leggja allt mitt kapp á það, vonandi ásamt hv. þingmanni úr nefndinni, að tryggja að þetta sé öruggt vegna þess einmitt að þarna eru skólabílar að keyra og fólk að fara á milli svæða og þetta er stórhættulegur kafli. Þess vegna brugðumst við við með þessum hætti og vildum alla vega sýna fram á það að við viljum mjög gjarnan setja meiri pening í þennan þátt.