157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[21:32]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég ætla að reyna að tala eins hratt og ég get, við höfum hérna eina mínútu. Það er í rauninni þannig, ef maður tekur svona efri áætlunina í kostnaði, þá kostar um 10 milljarða að laga veginn frá Fáskrúðsfirði til Breiðdalsvíkur. Þar eru skriður í leiðinni. Það var akkúrat forsendan fyrir því að við erum að fara í Fljótagöng núna. Það er ekki hægt að byggja upp veg í skriðum. Er ekki hv. þingmaður sem formaður samgöngunefndar sammála því að við verðum að skoða möguleikann á göngum? Þetta eru stutt göng, 4,9 km og 3,9 km, spara þar með yfir 20 km, spara viðhald, vetrarþjónustu og stytta þjóðveginn og við erum ekki að byggja upp veg í skriðum. Er hún sammála því að skoða þann möguleika alvarlega að taka frekar göng þarna í gegn? Ef við horfum til næstu ára og áratuga mun það ábyggilega borga sig fyrir íslenska ríkið.

(Forseti (BergÓ): Þetta var til fyrirmyndar.)