samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Forseti. Ég skal gera mitt besta. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Ég held einmitt að þarna sé svolítið lykilpunkturinn. Mér hefur fundist við stundum bútasauma okkur út úr vandanum, við erum stundum að holufylla okkur út úr vandanum, ef svo má segja, og ég er sammála því að líklega væri skynsamlegra að skoða þennan kost mjög vel til lengri tíma til þess að vera með fjárfestingu sem er þá kannski aðeins dýrari en skilar meiri ábata til lengri tíma. Mér finnst við oft vera að horfa á það hvernig leiðin er ódýrust, hvernig við getum tryggt sem ódýrastan hluta sem fyrst í staðinn fyrir að horfa til lengri tíma og dreifa þannig kostnaðinum og ábatanum á lengri tíma. Þannig að ég skal svara því bara hátt og skýrt: Já, hv. þingmaður, ég er sammála því að við eigum að skoða þennan kost mjög vel ásamt öðrum kostum. Eins og ég segi þá voru svona sögur um allt land og það er að mörgu að huga þannig að við þurfum klárlega að spýta í lófana ef við ætlum að ná utan um þessi viðfangsefni.
(Forseti (BergÓ): Þetta var sömuleiðis til fyrirmyndar.)