samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég ætla að byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir það að leiða nefndina, gera það vel og fyrir góða samvinnu. Mig langar til að spyrja út í jarðgöng í samhengi við innviðafélagið. Við vitum að þegar jarðgöng eru komin á áætlanir þá fara atvinnulíf, íbúar og fjárfestar að gera sín plön í kringum þær áætlanir og eitt af því sem maður vonar og treystir að innviðafélagið nái utan um er að passa upp á að tímalínur jarðganga standist þannig t.d. að vonbrigðin sem blasa við á Austurlandi í samhengi við Fjarðarheiðargöng verði ekki raunin. Við verðum dálítið að horfa á alvarleika þess að þessar áætlanir standist. Þannig að mig langar til að heyra frá hv. þingmanni: Telur hv. þingmaður að það sé hægt að tryggja með innviðafélaginu að áætlanir í samhengi við svona stór verkefni standist?