157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[21:36]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur kærlega fyrir andsvarið og sömuleiðis fyrir samstarfið í nefndinni. Hv. þingmaður hefur verið mjög öflug í því að koma með góðar og uppbyggilegar hugmyndir fyrir nefndina sem hafa nýst mjög vel í vinnslu við nefndarálitið og vinnuna sömuleiðis. Varðandi jarðgangaáætlanir og forsendur og samspil við innviðafélag þá er ég bara ofboðslega spennt. Við erum núna á þeim stað að við erum að horfa inn í einhverja framtíð og við getum auðvitað farið í alls konar æfingar um það hvað getur orðið og hvernig það getur litið út. Mér finnst ákveðnir hlutir blasa við, t.d. að gera eins og Færeyingar og Danir hafa gert, fara af stað með innviðafélag og stofna dótturfélög og horfi ég þá svolítið til þess sem Innviðafélag Vestfjarða hefur t.d. gert með sínum tillögum þar sem er lagt til að stofna sérstakt innviðafélag um Vestfirði og bjóða út t.d. alla þá jarðgangakosti sem eru eftir þar í einum svona súperpakka. Það væri mjög spennandi kostur, bæði fyrir Vestfirði og Austfirði, að horfa ekki á þetta sem einstök verkefni heldur að fara í stærri útboð og stærri hugmyndir.