157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[21:37]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og ég ætla að taka undir þetta. Það er spennandi að hugsa til þess að það sé hægt að taka ólíka kosti saman og ná þannig árangri hraðar. Vonandi getum við komist á þann stað með þetta félag. Mig langar í minni seinni spurningu að beina sjónum að tímalínum af því við erum að leggja af stað vonandi í þetta ferðalag og það ríður mjög á. Ég held það hafi verið vonbrigði fyrir okkur að það náðist ekki að fá meira fjármagn þannig að margt af því sem kom fram í umsögnum er eitthvað sem þarf að raungerast með þessari tilfærslu og þar af leiðandi skiptir máli að tímalínur innviðafélagsins standist svo að það sé hægt að leggja til breytingar, bæði þær sem meiri hluti nefndarinnar lagði fram, sem ég tel að taki á mörgum þáttum, en líka vonandi fleiri verkefnum. Þannig að mig langar til að spyrja hv. þingmann hvort hún telji að tímalínurnar sem verið er að horfa á, jafnvel að það sé hægt að gera þetta bara strax í haust eða næsta vetur, séu raunhæfar.