157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[21:39]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Já, ég er mjög bjartsýn á að þessar tímalínur standist. Tíminn hefur verið nýttur mjög vel af hálfu verkefnisstjórnar sem hefur verið í gangi í fjármálaráðuneytinu við að undirbúa stofnun innviðafélagsins. Nú er það í höndum þingsins að klára frumvarpið um innviðafélag, vonandi náum við að klára umræðu um það mál í þessari viku. Þá erum við búin að vinna okkar hluta hér á Alþingi. Þá eru spilin í hendi innviðafélagsins sjálfs, að fara af stað og tryggja að hægt verði að fara í þessar mikilvægu framkvæmdir. Ég veit að við erum auðvitað stórhuga og ætlum okkur að gera mikið og gera það vel. En auðvitað er ég sammála hv. þingmanni að það er mikilvægt að tímalínurnar standist, að við stöndum undir þessu trausti vegna þess að við erum þó alla vega með fjármagnaða aðgerðaáætlun. Við ætlum síðan að hafa innviðafélagið samhliða og það verður bara ofboðslega spennandi að sjá hvernig þessu vindur fram og ég veit að hv. umhverfis- og samgöngunefnd mun fylgjast mjög náið með því máli.