157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[21:40]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Virðulegi forseti. Hér ræðum við samgönguáætlun og það hefur verið áhugavert að fylgjast með umræðunni í dag. Ef maður tekur eitthvað eitt út úr umræðunni þá held ég að það sé almennt hægt að segja að hv. þingmenn séu nokkuð jákvæðir í sinni umfjöllun. En vissulega er alltaf hægt að gera betur. Mig langar, virðulegur forseti, að taka undir orð hv. þm. Maríu Rutar Kristinsdóttur hér áðan varðandi það að nú skulum við horfa fram á veginn og gera betur. Ég held að það sé mikið atriði, eins og hv. þingmaður orðaði það: Við skulum hætta að horfa í baksýnisspegilinn. Vissulega erum við að horfa hérna framan í mörg mikilvæg og stór verkefni en það sem er alveg ljóst er að öll vildum við fá meira og ég held að það sé líka alveg ljóst að þeir fjármunir sem upp á vantar, ég held að hægt sé að tala um að þetta séu kannski 25–30 milljarðar á ári til þess að við gætum verið í eðlilegri vinnu varðandi nýframkvæmdir og sömuleiðis viðhald.

Ég get ekki annað sem þingmaður Norðausturkjördæmis en tekið undir orð hv. þm. Jens Garðars Helgasonar áðan varðandi gleymda kjördæmið þegar kemur að samgönguframkvæmdum. Þegar horft er á þær framkvæmdir sem eru í kjördæminu þá er vissulega gleðiefni að það er verið að klára ýmsar framkvæmdir, t.d. Brekknaheiðina og annað, en síðan er það þannig, því miður, að áætlunin er virkilega afturþung þegar kemur að Norðausturkjördæmi. Í þau ár sem ég hef verið hér á þingi þá hef ég alltaf minnt á mikilvægi þess að byggja upp Bárðardalsveg vestari. Í hverri einustu ræðu þegar rætt hefur verið um samgöngumál þá hef ég komið inn á þann þátt. Ég ætla að gera það hér enn og aftur. Það eru ákveðin vonbrigði fyrir íbúa Bárðardals sérstaklega að enn og aftur erum við ekki að sjá framan í alvöruframkvæmdir á þeim vegi fyrr en 2031 í fyrsta lagi. Vissulega eru framkvæmdir fyrirhugaðar á 3 km kafla sem er frá þjóðvegi 1 að Öxará, á þessu ári. — Nú eru allir hér að leita að einhverjum síma sem er hér með æfingar. Það var þá formaður umhverfis- og samgöngunefndar sem er sökudólgurinn í þessu. Gott að brjóta þetta aðeins upp. En það er á tveggja ára tímabili, 2026 og 2027, sem á að klára þennan vegbút, þ.e. 3 km, og eftir eru 34 km af Bárðardalsvegi vestari. Vissulega vonbrigði. En við þingmenn Norðausturkjördæmis, ég reikna með því að hv. þm. Þorgrímur Sigmundsson komi hér á eftir mér í ræðu og taki undir þetta, við Þingeyingarnir stöndum nú saman þegar kemur að baráttunni hvað þetta varðar.

Vissulega eru jákvæð teikn á lofti varðandi Skjálfandafljótsbrúna, þá neðri, en enn og aftur er verið að seinka framkvæmdum við Fosshól. Ég verð nú að segja það, virðulegur forseti, að mér þótti Aðaldalurinn vera orðinn ansi stór þegar hv. þm. Ása Berglind Hjálmarsdóttir talaði um Skjálfandafljót í Aðaldal. Ég held að það sé töluvert ágreiningsefni, hvort það sé í Aðaldal eða tilheyri Kinn. En gott og vel. Það er aftur á móti mjög mikilvægt að hraða þeirri framkvæmd. Sú brú er komin vel til ára sinna. Ég held hún hafi verið byggð 1930, einbreið brú og er vissulega farartálmi og hún þolir náttúrlega engan veginn þunga, þar eru þungatakmarkanir. Það eru brýr sömuleiðis á Jökulsá og það eru vissulega mikil vonbrigði að þar sjáum við ekki framan í neinar tölur eða neinar áætlanir þegar kemur að því að styrkja þær eða byggja nýja. Það er aðkallandi á þjóðvegi 1 að farið verði í þær framkvæmdir.

Varðandi gangagerð þá kemur það svo sem engum á óvart að við þingmenn sem höfum barist fyrir Fjarðarheiðargöngum erum ekkert hoppandi kátir með þá forgangsröðun jarðganga sem hér er kynnt. En ég tek samt heils hugar undir það og fagna því að það eigi að hefja framkvæmdir við Fljótagöng. En það veldur mér áhyggjum að við erum ekki farin að sjá neitt hvað það varðar, alla vega ekki enn þá, hvernig eigi að fjármagna þau göng og það liggur alveg fyrir að Fljótagöng flokkast undir óarðbæra framkvæmd þannig að einhvers staðar þurfa peningarnir að koma og það er alveg ljóst að annaðhvort verður tekið að láni eða tekið af eigin fé ríkisins. En það er alveg ljóst, ef ég skil rétt uppbyggingu þessa innviðafélags sem við bíðum spennt eftir að taka hér til umræðu, að sú framkvæmd verður að engu viti, held ég, þannig að hún teljist markaðsberandi framkvæmd.

Varðandi innviðafélagið þá held ég að það sé spennandi hugmynd. Hún er áhugaverð. En þegar við erum að tala um markaðsforsendur þá hentar innviðafélagið fyrst og fremst á svæðinu milli Hvítár og Hvítár. Í grunninn er það þannig, ef ég hef skilið rétt, virðulegi forseti, að það þarf sirka 3.000 bíla á dag til að framkvæmd geti borið sig markaðslega. Umferð er eingöngu það mikil hér á suðvesturhorninu og síðan í nálægð Akureyrar, þ.e. einn vegkafli, Akureyri – Þelamörk, sem hugsanlega er þannig staddur. Þar af leiðandi þurfum við að hugsa aðrar leiðir sem tengjast þessu innviðafélagi í gegnum dótturfélög og þá þarf ríkið að koma þar að og þá verður það mjög líklega þannig að það verður ekki hægt að flokka það sem C-hluta félag og þá verður það A3-hluta félag í framhaldinu. Þetta segi ég með fyrirvara, virðulegur forseti, því ekki hef ég séð frumvarpið. En svona hef ég skilið það af því sem maður hefur fengið kynningu á núna undanfarið og í samtölum við hv. þingmenn sem hafa kynnt sér þetta betur. Þar af leiðandi verðum við að horfa til þess að allar gangaframkvæmdir á Austfjörðum, Norðurlandi og Vestfjörðum eru óarðbærar framkvæmdir. Ég get tekið dæmi: Um Vaðlaheiðargöng fara um 1.700 bílar á dag. Það eru þau göng sem eru næst Akureyri og flokkast væntanlega ekki sem arðbær fjárfesting og væntanlega er það ekki þannig með önnur göng sem á að fara í vonandi á næstu árum. En þá er mikilvægt að við reynum að hugsa í lausnum og verður spennandi að sjá hvort innviðafélagið sé með einhverja kosti, hvort við gerum það í gegnum dótturfélög eða annað. En aftur á móti er það algerlega kýrskýrt, held ég, og deilir enginn um það að fyrst og fremst erum við að tala um framkvæmdir milli Hvítánna sem henta fyrir innviðafélagið og síðan þessa framkvæmd í nálægð við Akureyri þar sem er þessi fjöldi bíla.

Það hefur verið áhugavert sömuleiðis, virðulegur forseti, að sjá tilraun meiri hlutans sem leggur til — og það er virðingarvert, verð ég að segja — breytingartillögu þar sem verið er að reyna að bæta í. Enn og aftur er það nú innviðafélagið sem verður nú sennilega einn stærsti leikandinn í því, sem snýr fyrst og fremst að því hvernig það fer með veginn á Kjalarnesi, hvort það verði hægt að taka hann inn í innviðafélagið eða hvernig sem það gerist. Þá myndast svigrúm upp á 6,3 milljarða, sem kemur fram í breytingartillögum meiri hlutans. Það er virðingarvert og jákvætt að meiri hlutinn stígur þetta skref. En allt er þetta háð því að allt gangi eftir og í sjálfu sér er ekkert í hendi hvað það varðar. Aftur á móti verð ég að hrósa meiri hlutanum hvað varðar eina breytingartillögu sem kemur fram í nefndaráliti sem snýr að því að þessar 800 milljónir sem áttu að fara í hringtorg á Egilsstöðum eru færðar yfir á framkvæmdina yfir Öxi. Og ef maður ber saman töflurnar í breytingartillögunni og í þingsályktunartillögunni frá hæstv. ráðherra þá sést það alveg greinilega að það munar, held ég, um heilan milljarð á næsta tímabili, þ.e. milljarði minna miðað við þá breytingartillögu sem meiri hlutinn hefur lagt til, mig minnir að þetta séu í þingsályktunartillögu ráðherra um 6,6 milljarðar en 5,7 eða 5,8, eitthvað svoleiðis, miðað við breytingartillögu meiri hlutans. Það er vel.

Verkefnið sem fram undan er er mikið. Það eru jákvæð skref stigin hér. Vissulega hefðum við íbúar og þingmenn Norðausturkjördæmis viljað sjá kröftugri aðgerðir í okkar kjördæmi en koma tímar og koma ráð. Þolinmæði svo sem hefur verið okkur frekar hliðholl í Norðvesturkjördæmi í gegnum tíðina og við höldum áfram að móast við og minna á mikilvægi uppbyggingar á samgönguinnviðum í kjördæminu. Það gleymist oft og það er vont að það gleymist oft — við eigum það til allt of oft að ræða það að við viljum halda byggð hér og þar og alls staðar í landinu, við erum búin að tala svona í tugi ára, en því miður eru efndirnar hjá okkur ekki nægar og ástæðan fyrir því að okkur gengur illa að halda byggð í dreifbýlustu svæðum landsins er sú að samgöngur eru ekki fólki bjóðandi. Það væri áhugavert fyrir þingmenn, alla þingmenn, að dvelja viku í Bárðardal og keyra daglega um þann veg. Vissulega er Bárðardalurinn langur. Ég minni á það að íbúar í Bárðardal keyra margir hverjir til vinnu bæði á Akureyri og Húsavík og í nærsveitum. Það er búið lengst inni í dalnum og lengsti kafli niður á þjóðveg er 50 km aðra leiðina. Börn eru að fara í skóla á Stóru-Tjörnum þannig að þetta er enginn smá akstur og vegurinn sem þarna er boðið upp á er ekki neinum bjóðandi.

Síðan skulum við hafa það í huga, af því að hér fyrr í umræðunni í dag kom oddviti eða 1. þm. Suðurkjördæmis og ræddi um ferðamenn í Suðurkjördæmi, bara mjög góð ræða hjá hv. þingmanni, að það er óhætt að segja að okkar sterkustu og öflugustu og aðdráttarmestu náttúruperlur á Norðurlandi eru við Skjálfandafljót, Goðafoss og Aldeyjarfoss. Það er gríðarlegur fjöldi ferðamanna sem keyrir þennan veg til að fara að kíkja á Aldeyjarfoss og sömuleiðis að keyra yfir Sprengisand og því miður er það allt of algengt, gerist á hverjum einasta degi, að það verði stórtjón á bílum og það er heppni að það sé ekki stórtjón á fólki líka. Þetta er það sem er boðið upp á. Staðan er þessi. Við verðum bara að halda áfram og tökum hvert skref í einu fram á við. Það er boðskapur formanns umhverfis- og samgöngunefndar í þessari umræðu. Horfum fram á við, tökum skrefin áfram og vinnum á þessari innviðaskuld sem ég ætla ekkert að hlaupa frá þótt ég hafi setið á þingi í þó nokkuð mörg ár og tekið þátt í og stutt ríkisstjórn sem hér hefur verið. En það er líka ástæðan fyrir því hvers vegna var ekki farið í þau fjölmörgu verkefni.

Lykilatriðið er samt þetta, virðulegur forseti: Hér erum við með plagg, mikið og öflugt skjal. Mér sýnist svona heilt yfir að það sé tiltölulega mikil sátt um það nefndarálit sem hér er. Ég held að flestir fagni samgöngubótum hvar sem þær eru á landinu. En vissulega verður það þannig og eðlilega að þetta fer stundum í svolítið kjördæmapot. Það er bara eðlilegt því að við sem búum á svæðunum þekkjum betur hvernig staðan er og reynum að tala máli okkar kjördæmis. Ég verð að taka undir og ítreka það sem hv. þm. Jens Garðar Helgason sagði hér áðan, að Austurland situr algjörlega á hakanum hvað varðar samgöngubætur. Suðurfjarðavegur, Fjarðagöng, Fjarðarheiðargöng. Þetta eru gríðarlega miklar framkvæmdir og mikilvægar til að efla atvinnustig á Austfjörðum og Austurlandi. Gleymum því ekki að fyrir ári síðan töluðum við okkur hása í tengslum við veiðigjöld. Jú, veiðigjöldin áttu að fara til þess að styrkja samgönguinnviði. Það eru sennilega fá samfélög í landinu sem borga hærri veiðigjöld á hvern íbúa en Austurland. Hvað erum við að sjá í þessari samgönguáætlun? Eru þeir fjármunir að skila sér til íbúa Austurlands? Nei, þeir eru ekki að því.

Það er lykilatriði, virðulegi forseti, að við horfum til þess hvernig við ráðstöfum fjármunum. Við ætlum að halda byggð í öllu landinu og þá þurfum við sem samfélag að leggja á okkur ákveðinn fórnarkostnað sömuleiðis til þess að treysta byggð.

Að lokum, virðulegur forseti, ætla ég að dvelja á Seyðisfirði hér síðustu mínúturnar. Ég ítreka mikilvægi þess að við horfum til þess og hlustum sömuleiðis og tökum mark á því sem formaður umhverfis- og samgöngunefndar sagði hér áðan. Mér fannst það mjög sterk og öflug innkoma hjá formanni umhverfis- og samgöngunefndar. Hún minnti á það að það er jú einhver forgangsröðun jarðganga til staðar en við þurfum að meta það líka, við þurfum að rannsaka, við þurfum að undirbúa og við þurfum að finna fjármuni. Þeir detta ekki af himnum ofan, það er alveg klárt. Þá skulum við fara að hugsa um það hvar við borum næstu göng. Vissulega byrjum við á Fljótagöngum en Fjarðarheiðargöng eru fullbúin og tilbúin til útboðs. Sameinumst nú um það, þingheimur, að finna fjármuni til þess að hefja framkvæmdir við Fjarðarheiðargöng. Það er lykilatriði. Gleymum því ekki að Seyðisfjörður er þjóðvegur Íslendinga til Evrópu. Það er stórt atriði sömuleiðis og til að treysta byggð og efla byggð á Seyðisfirði er þetta lykilatriði upp á það að við viljum halda Seyðisfirði í byggð og þá verðum við að sameinast um það þegar fram í sækir að tryggja að við förum af stað með Fjarðarheiðargöng innan einhverra ára.