samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir hans mjög svo góðu ræðu þar sem hann fór mjög vítt og breitt yfir sviðið. Ég þakka hv. þingmanni sérstaklega fyrir að minnast á eitt sem ég gleymdi að telja upp í minni upptalningu varðandi norðaustursvæðið og það er vegurinn inn í Bárðardal. Það gleymist nefnilega oft í umræðunni um einmitt þessa vegi um svæði þar sem er landbúnaður, að menn líta á þetta sem sveitavegi í þeim skilningi að þarna sé í rauninni ekki atvinnulíf, þarna sé í rauninni ekki verið að flytja til og frá vörur og aðföng í atvinnurekstur, í bú. Það sama má segja um Svarfaðardal sem er ekki hér inni í áætluninni. Svarfaðardalur er ekki inni í áætluninni en þar eru mjólkurbú, það eru mjólkurbílar, það eru aðföng. Þetta eru fyrirtæki í rekstri sem búa við þessar vegasamgöngur. Þetta er ekki bara fólk sem er að fara til og frá vinnu. Þarna er líka atvinnurekstur og það gleymist oft í umræðunni þegar verið er að tala um það og menn líta svo á að hér séu malarvegir og sveitavegir og íslenska sumarkonan vill mæta og sjá og keyra á malarvegi í fallegri sveit og upplifa einhverja rómantík í því. En hins vegar er það þannig að þarna er bara fullburða atvinnurekstur í gangi. Því langar mig að spyrja hv. þingmann hvort hann telji að það hafi í rauninni í gegnum tíðina, alveg óháð pólitík, kannski gætt smá svona, hvað á maður að segja — að þessir vegir og þessi svæði hafi oft ekki verið í forgangi þegar hugað er að vegauppbyggingu í ljósi þess að þetta séu bara sveitavegir.