157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[22:03]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið. Hv. þingmaður minntist á vegi inn í Svarfaðardal. Ég vil sömuleiðis nota tækifærið hér og minnast á vegi í Eyjafjarðarsveit, fram í Eyjafjarðarsveit, og þær brýr sem þar eru. Ef við erum að tala um atvinnustarfsemi þá er heldur betur hraustleg atvinnustarfsemi í Eyjafjarðarsveit. Þar er staðan meira að segja þannig að mjólkurbíllinn þarf að fara tómur yfir eina brú, síðan þarf að fara krókaleiðir til að fara fram á bæina og hann getur aldrei fyllt sig því að brýrnar þola það ekki. Í gegnum tíðina, frá því að ég man eftir, hafa menn verið að minnast á þessar brýr, hversu mikilvægt það væri að fara að endurnýja þær. Einbreiðar, handónýtar brýr sem þola ekki neitt. Hv. þingmaður spyr hvort fólk í sveitum gleymist við samgönguframkvæmdir. Ég veit ekki hvort það gleymist en ég hugsa að það sé nú frekar þannig að þar sem umferð er ekki massíf, ekki mikil, þá á það því miður til að verða svo að vegir inn til dala sitja á hakanum. Það eru ekki mörg ár síðan það var endurnýjaður vegur fram Eyjafjarðardal, fram í Eyjafjörð, og sá vegur, þegar hann var endurnýjaður, var gömul hestaslóð sem var rudd 1920 og eitthvað. Og það eru bara nokkur ár síðan þessi vegur var endurgerður. Það bara vildi þannig til að undirlagið var gott og lítill snjór þannig að menn þurftu að láta sig hafa það bara það sem eftir var. En vegurinn var algerlega ekki boðlegur. (Forseti hringir.) Svona er þetta mjög víða. Vissulega söknum við þess að sjá alla þessa minni vegi hér og annað en ég veit að við erum með takmarkað fjármagn (Forseti hringir.) og við þurfum að ráðstafa því en gleymum ekki því að við ætlum að verja byggð í öllu landinu.