samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson kemur inn á ákveðinn hlut sem snýr í rauninni að því hvernig við viljum halda landinu í byggð og hvernig við viljum að landið blómstri. Hvert er hlutverk ríkisins? Hlutverk ríkisins er að byggja upp innviði, byggja upp vegi, tryggja að það séu ljósleiðarar, að það sé nægileg og ódýr orka, fólk fái orku og síðan séu lágir skattar og gjöld og þá blómstra byggðir landsins. En svo er það reyndar þannig að síðan finnst vinstri mönnum að þeir þurfi að leggja á hærri skatta og gjöld og þurfi að boða alls konar boð og bönn og íþyngjandi reglugerðir og annað. Það er munurinn á hægri og vinstri. Við segjum bara: Ríkið, sjáið um ykkur. Látið okkur í friði og þá mun landið blómstra. Og peningarnir munu koma inn í ríkiskassann fyrir vinstri menn að eyða. Það er bara þannig.
Þá langar mig að spyrja hv. þingmann, af því að við erum að tala um peninga, hvort hann telji ekki að það væri í rauninni hægt að hagræða í rekstri ríkisins og setja meiri peninga í samgönguáætlunina. Það kemur fram að þetta eru á fyrsta tímabili 361,5 milljarðar og ef við deilum því niður á ár þá eru þetta 72 komma eitthvað milljarðar á ári af tæplega 1.700 milljörðum á fjárlögum. Það hlýtur að vera hægt að hagræða í rekstri ríkisins og forgangsraða í rekstri og úthlutun fjármuna þannig að það sé hægt að setja meiri peninga í samgöngumálum.
(Forseti (IngÞ): Forseta varð á í messunni og gleymdi að stilla klukkuna á eina mínútu eins og hann hefði átt að gera þannig að hv. þingmaður fékk ókeypis aukamínútu.)