samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Vissulega held ég að það sé alltaf hægt að gera hlutina á þann veg að hagræða í rekstri. Við komum væntanlega til með að sjá framan í þær tölur og í hvað peningarnir eru að fara þegar fjármálaáætlun kemur hérna til umfjöllunar á næstu dögum eða hvenær sem það verður, eftir helgi eða hvað. Þá sjáum við það nokkuð svart á hvítu hvert peningarnir eru að fara. Eru þeir allir að fara í aukningu til vegamála? Nei, því fer fjarri. Ég hef grun um að peningarnir séu fyrst og fremst að fara í það sem snýr að heilbrigðismálum, velferðarhlutanum og fleiri stöðum, ef við horfum á það hvert peningarnir fara. Ég held að það sé sá þáttur sem væri þá hægt að endurskoða. En það er mjög vandmeðfarið og það er tiltölulega auðvelt að koma hingað upp og segja: Heyrðu, nú þurfum við að hagræða í rekstri og gera þetta og hitt, en síðan þegar kemur að því þá vandast málið. En vissulega er þetta eitt af þeim atriðum (Forseti hringir.) þar sem þingheimur þarf, held ég, að taka sig svolítið saman um og spyrja: Hvar getum við sparað í útgjöldum, forgangsraðað fjármunum o.s.frv.? Það er lykillinn að betra samfélagi.