samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég hef svo sem ekki rekið augun í veginn um Útkinn. Sömuleiðis hef ég ekki rekið augun í veginn í Fnjóskadal og sömuleiðis hef ég ekki rekið augun í brúna á Jökulsá niðri í Kelduhverfi. Vissulega er þetta ekki tæmandi listi, það sem kemur fram í samgönguáætlun, en aftur á móti eru þetta vegir sem þarfnast verulegs viðhalds. Væntanlega getur formaður umhverfis- og samgöngunefndar eða framsögumaður málsins leiðrétt okkur hér og hjálpað okkur eitthvað yfir þá hjalla sem við erum staddir á af því að við finnum ekki ákveðna vegkafla og annað. En aftur á móti er jú Lagarfljótsbrúin á tímabilinu 2036–2040, 4,9 milljarðar þar. (Forseti hringir.) Vissulega framkvæmd sem er komin verulega á tíma, en þetta er ekkert einsdæmi. Svona eru mörg fleiri samgöngumannvirki hjá okkur, þetta er allt komið á tíma og því miður er þetta staðan.