samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Ég þakka fyrir svarið. Ég held nefnilega að staðan sé sú að hvorki mér sem hér stend né hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni sé að sjást yfir eitthvað, ég held að þessir vegir séu einfaldlega ekkert þarna sem eru auðvitað gríðarleg vonbrigði. Svo langar mig að spyrja út í annan stuttan kafla sem ég held að finnist hvergi heldur og hefur reyndar, svo því sé haldið til haga og gætt sanngirni, verið reynt að gera við áður en einhverra hluta vegna hafa viðgerðir á þeim stutta kafla algjörlega mistekist. Það er tiltölulega stuttur kafli sunnan Húsavíkur, við getum sagt svona milli Kaldbaks og Saltvíkur. Ég held að fólk hefði gott af því að sjá t.d. hreyfingar á fulllestuðum flutningabíl sem fer þann kafla. Hv. þingmaður getur þá leiðrétt mig ef það er rangt að þetta sé hvergi að finna. Og svo langar mig að fá álit hv. þingmanns á því sem er hin gífurlega mikilvæga framkvæmd, að ég tel, og þjóðhagslega arðbær og er klárlega eitt af lykilatriðunum til að rjúfa einangrun Austurlands; (Forseti hringir.) göng undir Lónsheiði. Þau virðast vera einhvers staðar í fjarlægri framtíð.