157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[22:14]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Væntanlega er, held ég, skýring á þessu og nú bið ég hv. þm. Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur að fylgjast með því sem ég segi hér: Væntanlega er þetta flokkur milli nýframkvæmda og viðhalds. Ég hef grun um að það hljóti að vera það sem á þessu byggir og það kemur eðlilega ekki fram í samgönguáætlun vegna þess að viðhaldshlutinn er ekki tilgreindur í samgönguáætlun. Ég hef grun um að ég sé að skjóta svolítið nálægt markinu núna hvað þetta varðar. Þar af leiðandi eru ekki þessir bútar og vegkaflar hér inni, það er svo sem ekki verið að fara í neinar nýframkvæmdir. Þetta er fyrst og fremst viðhaldsfé og samkvæmt mínum skilningi er töluvert mikil aukning á viðhaldsfé í þessari áætlun sem er jákvætt. En aftur á móti saknar maður nýframkvæmda og eins og svo sem hefur komið fram bæði í andsvörum og ræðum hjá okkur þingmönnum Norðvesturkjördæmis þá (Forseti hringir.) er áætlunin fyrir nýframkvæmdir í Norðausturkjördæmi verulega afturþung.