samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir sína yfirferð. Ég verð að segja að ég nýt þess bara reglulega mikið að vera hérna með ykkur þingmönnum úr Norðausturkjördæmi, þið eruð skemmtilegir. En hérna erum við ekki aðeins að horfa fram hjá viðhaldi heldur erum við líka að horfa fram hjá tengivegapottinum í þessari umræðu þar sem eru 2,2 milljarðar á ári, sem er alveg umtalsvert. Þessir vegir sem þið nefnið sem eru þarna í Svarfaðardal og Útkinn og Fnjóskadal, ég gæti trúað því að þeir komi þar undir. Ég skal ekki alveg segja hvort þetta séu héraðsvegir eða tengivegir, það er erfitt fyrir manneskju sem ekki er heimamanneskja að átta sig á því. En ég gæti trúað því að þeir falli þarna undir. Við erum ekki með lista yfir þessi verkefni. Í nefndarálitinu er listi yfir viðhaldsverkefni fyrir árið 2026 en það er ekki hægt að gefa það út lengra fram í tímann. Við í nefndinni biðluðum hins vegar til Vegagerðarinnar að reyna að sýna meiri fyrirsjáanleika gagnvart þeim verkefnum sem ætti að fara í. — Hef ég enn þá tíma?
Varðandi viðhaldið, af því að hv. þingmaður kemur líka inn á veiðigjaldið, þá er umframfjármagnið sem við erum að setja í viðhaldið og mun skila sér um allt land upphæðin sem um ræddi hér í umræðunni um veiðigjöld, þannig að þetta er að skila sér. Og af því að ég sé að ég hef enn þá tíma og ég veit að það mun gleðja hv. þingmann, þá fann ég hérna vísu sem ég ætla að lesa fyrir þig, með leyfi forseta:
Bárðardalur er besta sveit,
þó bæja sé langt í milli.
Þegið hef eg í þessum reit
þyngsta magafylli.