157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[22:17]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir, þetta var svo sem fróðleikur, ekki beinar spurningar. Ég þakka fyrir góða vísu sömuleiðis. Við sem höfum farið á þorrablót í Bárðardal vitum að þetta á mjög vel við, menn fá vel að borða, ég á þarna frænku sömuleiðis sem gefur alltaf vel að borða þannig að þetta gæti vel passað. Ég þakka hv. þingmanni fyrir leiðbeiningar og skýringar. En þegar kemur að því að endurbyggja brýr þá hljóta þær að koma inn hér, þær eru ekki inni í tengivegakaflanum eða viðhaldskaflanum, ég held að það hljóti að vera þannig. Þær eru ekki þarna inni, brýrnar inn í botni Eyjafjarðar og sömuleiðis brúin yfir Munkaþverá, hún er ekki. Brú sem kölluð er Stíflubrú, rétt við Möðruvelli, þar fremra, er ekki þarna inni. Þessar brýr væru væntanlega flokkaðar undir samgönguáætlun ef þær væru þarna inni og ég sé ekki að þær séu þarna, þær flokkast örugglega ekki undir viðhald eða tengivegi. En aftur á móti tek ég undir með hv. þm. Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur hvað varðar vegina um Fnjóskadal, Útkinn og fleiri staði. Þeir eru væntanlega tengivegir, ég held að þeir séu ekki flokkaðir sem héraðsvegir, ég held að það sé ekki þannig. Ég er ekki alveg með skilgreininguna á hreinu en mér finnst mjög líklegt að þeir séu þar undir.