samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Já, einmitt, tengivegir eru vegir utan þéttbýlis sem liggja af stofnvegi á stofnveg eða af stofnvegi á tengiveg og eru a.m.k. 2 km langir. En viðhald getur sannarlega átt við um brýr. Það er talið upp sem eitt af því sem fellur undir viðhald þannig að það er ekki útilokað. En við erum með náttúrlega Bárðardalsveg vestri sem er á tíma aðgerðaáætlunar sem er ný brú yfir Öxará og bundið slitlag, þetta er þarna ákveðinn bútur, og restin af Bárðardalsvegi, Sprengisandsleiðin, er á öðru og þriðja tímabili þannig að þetta er nú sennilega allt á áætlun, er hluti af tíma aðgerðaáætlana, sem ég held að teljist bara alveg ágætt miðað við þörfina sem birtist okkur út um allt land.