157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[22:20]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka enn og aftur kærlega hv. þingmanni fyrir andsvarið og það er hárrétt hjá hv. þingmanni að þarna erum við að ræða um 3 km kafla frá þjóðvegi 1 að Öxará, 530 milljónir, ég man nú ekki alveg töluna, á þessu ári, 2026 og síðan eru eitthvað innan við 100 milljónir á árinu 2027, sem er bara jákvætt. Þá eigum við eftir 34 km. Í samgönguáætlun 2020–2024, sem stundum hefur verið rædd hér í þessari umræðu, var Bárðardalsvegur vestari á áætlun mun fyrr og þar af leiðandi færist þetta bara aftar og aftar og er komið á tímabilið 2029–2031. Ég held að það sé mjög mikilvægt að við endurskoðum þessar framkvæmdir og veltum þessu fyrir okkur því að það er (Forseti hringir.) mjög mikilvægt að horfa til þess að þetta er mjög sérstakur vegur, sérstaklega varðandi íbúana og náttúrlega allan þann ferðamannastraum sem þarna fer um.