samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir ágæta ræðu. Eins og kom fram hjá hv. þm. Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur hér áðan þá erum við svolítið áberandi núna í umræðunni hér, þingmenn Norðausturkjördæmis, og skal engan undra, við erum nú öflugir og sterkir talsmenn fyrir okkar kjördæmi og svo sannarlega á það við um hv. þm. Þorgrím Sigmundsson. Varðandi Skjálfandafljótsbrúna neðri þá eru þarna miklar vegaframkvæmdir sömuleiðis fyrirhugaðar og þetta er mjög jákvæð framkvæmd. Nú veit ég að hv. þingmaður er nú betur staðkunnugur þarna en ég. Telur hv. þingmaður að sú framkvæmdaáætlun, eða aðgerðaáætlun heitir þetta víst, sem er í samgönguáætlun geti staðist miðað við þessar aðstæður sem þarna eru? (Forseti hringir.) Þetta er gríðarleg framkvæmd, að byggja nýja brú og gera þessa vegi alla sem þarna eru fram undan, gríðarleg framkvæmd. Vonandi er þetta hægt. En hvað segir hv. þingmaður um það?