samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Ég held að það sé nú augljóst af hverju þingmenn Norðausturkjördæmis eru áberandi í pontu núna. Það er einfaldlega mat fólksins í Norðausturkjördæmi að það beri mjög skarðan hlut frá borði. Varðandi spurningu hv. þingmanns hvort þessi framkvæmdaáætlun geti gengið eftir þá er þetta 9,5 km kafli, sýnist mér, áætlun upp á 4,750. Hún fer nú reyndar mjög varlega af stað, svo því sé haldið til haga. En ég get eiginlega ekki svarað hv. þingmanni vegna þess að mér er ekki kunnugt um hvar samningar standa við landeigendur. Þangað til við fáum betri upplýsingar um það — ja, þær upplýsingar þurfa alla vega að liggja fyrir áður en ég fer að leggja mat á tölurnar og tímalínuna.