157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[22:45]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir svarið. Ég met svar hv. þingmanns mikils því að ég held að svar hans sé rétt. Ég veit ekki til þess að þeim undirbúningi sem þarf að fara í sé lokið. En það má vel vera að það sé rangt. Mig langar í seinna andsvari að velta upp við hv. þingmann aðstæðum við brúna á Jökulsá við Ásbyrgi, á því svæði, og brúarstæði væntanlegt og aðstæður þarna. Ég met það sem svo að ný brú þurfi eiginlega að koma á sama stað og brúin er fyrir og það er engin vinna, hún er ekki á áætlun. En þarna verður klárlega að fara af stað í vinnu því að við skulum horfa til þess að það er að byggjast upp gríðarleg framleiðsla í landeldi í Öxarfirði og þungaflutningar fram undan, alveg klárlega, á næstu grösum.