samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég ætla ekki að þykjast sérfróður um hvað væri besta brúarstæðið. Svona fljótt á litið yrði ég ekki hissa þó að það yrði á mjög svipuðum slóðum. En það er kannski fullsnemmt að byrja að tala um það því að það grillir einfaldlega ekkert í þessa framkvæmd. Þrátt fyrir að brúin sé algerlega gengin sér til húðar þá eru engar vísbendingar um að farið verði í framkvæmdir þar á næstunni, því miður, því eins og hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson bendir á þá hafa þungaflutningar á þessum vegkafla stóraukist með stækkun á fiskeldi á landi í Öxarfirði. Nú er mér ekki kunnugt um tonnafjöldann sem fer daglega frá eldinu en hann er umtalsverður en að það gefur augaleið að brúin, aðkoman að brúnni og brúin sjálf, er ekki í neinum takti og engan veginn frambærileg til þess að vera samgöngumannvirki fyrir alla þá flutninga sem þurfa að eiga sér stað til að koma vöru þessa fyrirtækis á markað.