samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir sína yfirferð, mjög upplýsandi, yfir hans kjördæmi. Hv. þingmaður var að velta fyrir sér viðhaldi og hvað gæti verið fram undan í því og tengivegapottinum, þá er það nú þannig að það er ekki ljóst varðandi tengivegapottinn hvað er fram undan. En við erum með listann yfir það sem er fram undan í viðhaldi árið 2026 og ég var að hugsa um að fara bara yfir það, það er þá alla vega eitthvert innlegg í þessa umræðu: Á Norðurlandi er það á hringveginum Fnjóskadalsvegur eystri – Norðausturvegur, tveir kaflar, og Skagastrandarvegur – Hvammsvegur. Svo er það Skagavegur – Sauðárkrókur, Skarðseyri og það er Kísilvegur. Á Austurlandi er það Fossgerði, Nesjaþorp og Meðalfellsvegur. Þetta er viðhaldið fyrir 2026 á svæðinu þarna um Norður- og Austurland.