samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur fyrir þessa upptalningu. Ég veit svo sem ekki hvað er mikið á henni að græða samt því að henni fylgja engar tölur og þar af leiðandi ekkert samhengi við hvað stendur til að gera, hvar eða hve mikið, (Gripið fram í.) en vissulega gott að fá þessa upptalningu. Ekkert af þessu kom mér á óvart í þessari upptalningu nema ég átta mig ekki alveg á því svona í fljótu bragði hvað það er á Kísilveginum sem kallar á þetta, það hljóta í það minnsta að vera minni háttar breytingar eða lagfæringar því að líklega er hann af þeim vegum sem þarna voru upp taldir í einna besta ástandinu. Það sem helst mætti gagnrýna við Kísilveginn er kannski bara það sama og við Dettifossveg, þ.e. skortur á snjómokstri. Það er, held ég, það sem brennur helst á þar.