157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[22:51]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Ása Berglind Hjálmarsdóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Takk fyrir svarið, hv. þingmaður. Mig langaði í mínu öðru andsvari að ræða um Þelamörk – Akureyri af því að ég veit að það er aðkallandi framkvæmd. Í nefndarálitinu er það stjörnumerkt hjá okkur til skoðunar fyrir innviðafélagið. Við settum inn þær framkvæmdir sem við töldum að myndu standast þetta markaðspróf sem þarf að eiga sér stað og þarf að standast til að verkefni komi til greina fyrir innviðafélagið og Þelamörk – Akureyri gæti gert það þannig að við settum þetta þar inn. Möguleiki á því að innviðafélagið muni grípa þessa framkvæmd. Það gæti komið til greina, við vitum það ekki. En það er vissulega búið að opna fyrir það með þessari stjörnumerkingu. Í þessu samhengi langar mig að spyrja hv. þingmann út í hans afstöðu gagnvart innviðafélaginu og hvernig þetta horfir við honum. Eins og þetta horfir við mér er það bæði verkfæri til að flýta stórframkvæmdum, fjármagna og framkvæma þær, en á sama tíma búa til súrefni fyrir aðrar mikilvægar framkvæmdir um allt land.