157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[22:52]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka fyrir seinna andsvarið. Til að byrja með þá kemur það ekki á óvart, þegar farið er að stjörnumerkja eða flokka þá vegkafla sem í Norðvesturkjördæmi gætu komið til greina sem álitlegir kostir inn í slíka framkvæmd, að það skuli einmitt vera þessi kafli enda mjög umferðarþungur, í það minnsta á mælikvarða landsbyggðarinnar er hann mjög umferðarþungur. En ég á erfitt með að svara hinu því að ég verð að viðurkenna það fyrir hv. þingmanni að ég er ekki alveg búinn að ná utan um það enn þá hvernig þetta fyrirhugaða innviðafélag mun virka í praxís. Ég er pínu óttasleginn, uns ég fæ frekari upplýsingar, við að mögulega verði til svona ríki í ríkinu, að þetta verði einhvern veginn fjarlægt pólitík og við séum að horfa á — ég er ekki að bera þetta saman við Isavia, en bara til að taka einhverja myndræna samlíkingu — að hugsanlega standi til að búa til eitthvað sem verði ótengt pólitíkinni og þá verður forgangsröðunin að sjálfsögðu eingöngu á viðskiptalegum forsendum en alls ekkert endilega í samhengi við það sem kannski (Forseti hringir.) sitjandi stjórnvöld hvers tíma myndu telja æskilegt að væri fremst í röðinni. En ég ítreka að ég er ekki búinn að fá nógu miklar upplýsingar enn þá um þetta fyrirhugaða innviðafélag til að geta kannski endanlega tekið afstöðu til þess.