samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir hans góðu ræðu. Mig langaði að spyrja hér hv. þingmann í fyrstu spurningu um það sem tengist náttúrlega samgönguáætlun og tengist innviðafélaginu, allt hangir þetta saman. Það er svo að það á í rauninni að fara að rukka á ákveðnum stofnvegum og jafnvel rukka í einhver göng til þess að fjármagna innviðafélag. En það er í rauninni bara aukagjaldheimta, ekta vinstri mennska, auka bara gjaldheimtuna. Það á ekki að draga neins staðar annars staðar úr á móti heldur á að auka gjaldheimtuna. Ef við hugsum í rauninni gjaldheimtu, veggjöld, sem leið til að fjármagna samgöngumannvirki — mig langaði að heyra kannski hugmyndir hv. þingmanns um það — við myndum fella niður kolefnisgjald, vörugjöld, bifreiðagjöld, eitthvað slíkt, fella niður kílómetragjald, fella niður á móti og í rauninni myndum við fjármagna þetta með því að rukka á stofnbrautum og samgönguvirkjum. Hvernig líst hv. þingmanni á slíkar hugmyndir?