157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[22:55]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir spurningarnar. Eins og ég sagði í svari mínu við hv. þm. Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur þá er ég auðvitað ekki búinn að sjá alveg hvernig þetta innviðafélag er hugsað. En ef það er hugsað svona eins og hv. þm. Jens Garðar Helgason lýsir þessu þá er algjörlega á kristaltæru að það verður að fella eitthvað niður á móti, nóg er þessi stjórn búin að bæta við af sköttum. Það fyrsta sem ég myndi vilja sjá fara út væri að sjálfsögðu hið meingallaða kílómetragjaldskerfi. Ég benti á það hér í ræðu eftir ræðu fyrir síðustu áramót hvernig þetta myndi fara. Hér kom hver þingmaðurinn á fætur öðrum til að segja mér að þetta myndi alls ekki fara svona. Hæstv. fjármálaráðherra sagði að þetta yrði ekkert mál, það væru bara tölvur sem sæju um þetta og skipti engu máli hvað bílarnir væru margir o.s.frv. En allt fór þetta nákvæmlega eins og ég sagði að þetta myndi fara, nákvæmlega eins. Þannig að ef þetta innviðafélag er eins og hv. þingmaður lýsir þá verða einhverjir aðrir skattar og einhver önnur innheimta að falla niður á móti. (Forseti hringir.) Við getum ekki bætt einhverjum gjöldum á tilteknum vegarköflum ofan á allt hitt sem fyrir er. Og ég held að ég hafi nefnt hér, forseti, áðan í ræðu minni að fyrir vorum við að taka u.þ.b. 80 milljarða af ökutækjaeigendum og þeir voru ekki allir að fara í uppbyggingu á vegakerfinu.