samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans fyrra svar. Þá langar mig að venda kvæði mínu í kross og ræða aðeins um jarðgöng. Það blasir alveg skýrt við að Fljótagöng eru næstu göng þrátt fyrir hörð mótmæli Austfirðinga og þá sýnist mér úr þessu, við erum komin í síðari umræðu um samgönguáætlun, að ríkisstjórnin ætli að halda sig við þessa forgangsröðun og byrja á Fljótagöngum — enginn er að tala á móti Fljótagöngum en menn eru búnir að breyta röðinni hins vegar. Er ekki hv. þingmaður sammála því að næstu göng á eftir Fljótagöngum komi á Austfjörðum og að næsti gangakostur verði þá sá að við förum alla leið og tengjum alla Austfirði saman og Austurland saman í eitt?