157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[22:58]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessar spurningar. Ef ég byrja á Fljótagöngum, og ég vek athygli á því fyrir fram að ég er ekki andvígur Fljótagöngum, þá vek ég athygli á því að þeir sem ég hef haft samband við á þessu svæði kölluðu miklu frekar eftir nýjum Múlagöngum, sem sagt betri samgöngum til Akureyrar. Hvort það mengi sem ég er að tala við er marktækt úrtak er svo önnur saga.

Varðandi spurningu hv. þingmanns um hvort ég sé sammála honum um að næstu göng þurfi að koma á Austurlandi þá ætla ég alla vega að leyfa mér að segja að mér þætti annað mjög skrýtið í ljósi þeirra fyrirheita sem var búið að gefa. Áður en núverandi ríkisstjórn og núverandi innviðaráðherra komu þá held ég að það hafi legið ljóst fyrir og mér þætti það óeðlilegt ef það væri ekki Austurland þó að það séu vissulega brýn verkefni annars staðar. Ég er t.d. mjög áfram um að það verði fundin leið til að komast fram hjá Öxnadalsheiðinni en það er kannski efni í annað samtal við hv. þingmann.