samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir sína yfirferð. Mig langar til að byrja á áhyggjum hv. þingmanns þegar kemur að því hvernig innviðafélagið muni líta út, hvernig það muni virka, út frá athugasemdum um að hér megi ekki verða til ríki í ríkinu af því að ég held að það sé eitthvað sem allir eru að hugsa. Fólk er að hugsa um að það sé svona ákveðin fjarlægð frá pólitískri ábyrgð, að við þurfum að tryggja framkvæmd sem passi upp á að það sé pólitísk ábyrgð, að það sé hægt að tímasetja aðgerðir o.s.frv. Við áttum fund með þeim sem eru að vinna verkefnið í dag og mér fannst ánægjulegt að þar kom fram að það ætti að vera hægt í gegnum dótturfélög að fjármagna sérstök verkefni sem þurfa meðgjöf, eru sem sagt ekki arðbær, þannig að það eigi að vera hægt, alveg eins og hefur verið gert með sum verkefni í Færeyjum, að fara í slík tímasett verkefni (Forseti hringir.) þannig að það sé ákveðin pólitísk ábyrgð þar. Og því langar mig að spyrja hv. þingmann (Forseti hringir.) hvort hann telji í slíku samhengi, ef svo er, að það sé þá vel að innviðafélag komi inn í þetta mengi sem við erum að tala um.