157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[23:00]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka fyrir spurninguna. Ég verð að svara hv. þingmanni á svipaða leið og ég gerði hér í máli mínu áðan. Mér hugnast ekki ríki í ríkinu. Ég held að við sem þjóð séum búin að sjá nóg af því og erum ekki enn búin að bíta úr nálinni með það, til að mynda með Isavia og fleira, að búa til einhver fyrirbæri sem verða einhvern veginn algerlega stjórnlaus og eru jafnvel þau fyrirbæri í íslensku samfélagi sem taka svo mest til sín og eru í mestum framkvæmdum á meðan fjárlaganefnd Alþingis glímir við til að mynda nokkur hundruð milljónir hér eða milljarð þar. Svo næst einhver lending í tilraun til að halda sig innan t.d. hinnar títtnefndu stöðugleikareglu. Þá kemur svo hin deildin, Isavia, Landsvirkjun og mögulega fyrirhugað innviðafélag, og sprengir þessa skala alla upp og það ræðst ekkert við þá stjórn sem Alþingi Íslendinga er að reyna að ná á framkvæmdum í landinu.