samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Ég þakka aftur hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir sínar spurningar. Því er kannski fyrst til að dreifa og ég hef ítrekað tjáð mig um það hér í þessum ræðustól, ég gerði það ítrekað þegar við vorum að ræða fjárlögin í desember, að það sem alltaf virðist gleymast í umræðunni er að á sínum tíma var lögum um opinber fjármál breytt þannig að eyrnamerkt fé var ekki lengur heimilt. Þá jókst að mínu mati vandinn hvað vegakerfið varðar því að við vorum að innheimta — og þá sögu er hægt að rekja alveg aftur til þess þegar bifreiðagjöldin voru sett á sínum tíma sem áttu að vera til skamms tíma til að fara í átak í vegakerfinu. Síðan erum við búin að endurtaka þessa rúllettu aftur og aftur. Ökutækjaeigendur eru alltaf rukkaðir meira og meira, fundin ný og ný gjöld. Nú eru það kolefnisgjöldin, kílómetraskatturinn og núna mögulega sérstök gjöld fyrir ákveðna vegkafla. Við erum að innheimta miklu meira af ökutækjaeigendum heldur en við erum að setja í samgöngumannvirki (Forseti hringir.) þannig að svigrúmið er þarna. Það eru aðrir staðir í rekstri báknsins sem þarf að spara í til að þessir peningar skili sér þangað sem þeim var ætlað.