157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[23:28]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir hans góðu yfirferð. Mig langaði kannski að velta aðeins vöngum með hv. þingmanni, sérstaklega af því að við fáum nú tvær mínútur í hvort skipti núna í andsvörum, sem er mjög mikill lúxus, yfir innviðafélaginu og því að núna er hæstv. ríkisstjórn búin að næstum því tvöfalda vörugjöld á ökutæki. Það er búið að leggja á kílómetragjald, landsmönnum til mikillar gleði um hver mánaðamót að fá það í pósthólfið hjá sér á island.is og svo mætti lengi telja. Bifreiðagjöld voru hækkuð líka. Og nú stendur til að fara að leggja á veggjöld, veggjöld sem eru ekki hugsuð, eins og hefur kannski oft verið rætt áður í þingsal, sem einhvers konar önnur útfærsla á því að innheimta gjöld en fella þá niður önnur gjöld á móti, kolefnisgjald, vörugjöld, kílómetragjald o.s.frv., einfalda í rauninni hvernig við gerum þetta. En hér er hreinræktuð vinstri stjórn á ferðinni sem í rauninni lítur bara á veggjöld sem aukaálögur á ökutækjaeigendur á Íslandi. Auðvitað vitum við að þetta mun náttúrlega bara eins og öll hin gjöldin hækka verð. Þetta mun hækka kostnað fyrirtækja, þetta mun hækka verð á aðföngum og öðru fyrir fyrirtæki úti á landi o.s.frv. Mig langar að spyrja hv. þingmann eða fá hann til þess að fara yfir hvað honum finnst í rauninni um þetta. Hvenær er nóg nóg í skattlagningu á ökutækjaeigendur á Íslandi þegar það er í rauninni verið að bæta alltaf við gjaldheimtuna í staðinn fyrir að reyna að finna einhverja einfaldari lausn?