samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég er þeirrar skoðunar að það bendi margt til þess að núverandi stjórnvöld hafi allt að því gengið af göflunum í mati sínu á því hvað séu forsvaranleg gjöld og skattar á akstur og ökutæki. Það hversu erfitt er að draga fram upplýsingar — nú erum við komin hér að lokum annars þingvetrar þessarar ríkisstjórnar þannig að hún getur ekki lengur skákað í því skjóli að síðasta ríkisstjórn hafi ekki heldur getað útskýrt þetta. Nú bara færumst við nær og nær til að mynda samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, borgarlínuævintýrinu og þessu öllu. Menn verða að fara að sýna á spilin. Maður skynjar það á því skilningsleysi sem mér þótti blasa við þegar við ræddum hér til að mynda vörugjöldin á ökutæki í desember síðastliðnum og kílómetragjaldið, mér þykir blasa við slíkt skilningsleysi að það er ekkert víst að það sé neitt stopp í fyrirsjáanlegri framtíð í umfangi gjaldtöku af akstri og ökutækjum, því miður. Á meðan menn geta ekki svarað einföldum spurningum um það hvað menn sjái fyrir sér að falli undir 1,7% talninguna þá er allt eins líklegt að eitthvað af þessum hugmyndum um sértæka gjaldtöku í formi veggjalda falli þar utan og bætist ofan á þá tölu. Þannig að ég er hræddur um að við sjáum ekki til lands í þeim efnum, það muni koma enn frekari árásir í garð akstur og ökutækja sem líka borga meira og minna innviði þessara virku ferðamáta sem nefndarálit hv. meiri hluta leggur svo mikla áherslu á. Meiri hluti nefndarinnar leggur auðvitað það mat á sem hann telur skynsamlegt. En ég held að það verði á endanum og ég held að menn séu reyndar komnir mjög nærri því nú þegar (Forseti hringir.) að það verði engin sátt um þessa gríðarlegu aukningu í gjaldtöku á akstur og ökutæki.