157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[23:33]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hæstv. ríkisstjórn er alla vega ekki mikið að hlusta eða taka tillit til vilja fólksins. Ég veit ekki betur en að um 42.000 undirskriftum hafi verið skilað inn þar sem er verið að mótmæla kílómetragjaldinu. Það hefur ekki einn einasti stjórnarþingmaður, svo ég viti til, komið hér upp og tjáð sig og haft áhyggjur af því að 42.000 Íslendingar séu búnir að mótmæla kílómetragjaldinu.

Þá langar mig kannski tengt þessu, af því að nú erum við að fara að ræða fjármálaáætlun, að horfa á stóru myndina. Fjárlög eru tæpir 1.700 milljarðar, 1.685 milljarðar, ef ég man rétt. Á framkvæmdaáætlun þessarar samgönguáætlunar fyrstu fimm árin eru 361,5 milljarðar eða sirka 72 milljarðar á ári. 72 milljarðar á ári af 1.700 eru um 4% af fjárlögum. Þetta eru stórar upphæðir en í stóru myndinni þá er — af því að það vantar ekki slagorðin, það vantar ekki umbúðirnar, ræsa vélarnar og rjúfa kyrrstöðu og allt þetta, við þekkjum þetta og höfum orðið gaman af slagorðapólitík ríkisstjórnarinnar sem er farin að veita okkur í stjórnarandstöðunni eiginlega bara mikla skemmtun. Hvað kemur næst, hvaða nýyrði kemur næst? En telur hv. þingmaður ekki að það sé raunverulega hægt að hagræða þannig í rekstri ríkisins að það sé hægt að stórauka útgjöld til samgöngumála, bara með betri rekstri ríkisins, með því að eyða minna og eyða í rétta hluti og forgangsraða fé í ríkisrekstri?