157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[23:35]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni seinna andsvar. Ég held að þetta sé kjarni málsins, við verðum með öllum tiltækum ráðum að fara betur með skattfé en við höfum verið að gera undanfarin ár. En það er líka þannig, og kemur kannski ekki alveg á óvart, að ríkisstjórnarflokkarnir virðast að einhverju marki telja sig geta keyrt á frösunum, að bílar landsins aki um á frösum ríkisstjórnarinnar. Ef okkur tekst að ná tökum á ríkisútgjöldunum og förum að leggja meiri áherslu á fjárfestingu í stað þess að verja fé til reksturs oft og tíðum, í öllu falli er mikilvægara að sýna allt að því harkalegt aðhald í rekstri hins opinbera heldur en sú þægilega leið til að loka fjárlögum hverju sinni að skera niður fjárfestingu, hvort sem hún er í vegakerfinu eða annars staðar í því. Til að svara spurningu hv. þingmanns þá er ég sannfærður um það að við getum skapað það svigrúm að þeir peningar sem er verið að innheimta í skatta og gjöld af akstri og ökutækjum verði notaðir til uppbyggingar vegakerfis og viðhalds þess. Við komumst á þann stað að hver króna geti farið til uppbyggingar og viðhalds vegakerfisins ef við sýnum aðhald og sníðum okkur stakk eftir vexti í þessum rekstrarlega hluta opinbera kerfisins.