157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[23:37]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka þingmanninum ræðu sína og bregðast aðeins við hans vangaveltum eða spurningum varðandi innviðafélagið. Þessi mál hafa auðvitað verið lengi til umræðu í sölum Alþingis og ýmsum hugmyndum teflt fram og á undanförnum árum hafa verið samþykkt lög m.a. um samvinnuverkefni sem er talið að hafi ekki alveg náð tilgangi sínum eða verkefnin hafi verið þannig saman sett að þau hafi kallað á meiri fjármagnskostnað. Það má kannski segja að þær hugmyndir sem hafa gengið lengst séu hugmyndir þingmannsins sjálfs og hv. þm. Jens Garðars Helgasonar sem var fyrsti flutningsmaður að þingsályktunartillögu um samgöngufélagið Þjóðbraut sem var lögð fram í haust, þar sem talað er um að leggja veggjöld á núverandi umferðarmannvirki til að hraða og flýta stórum og flóknum samgönguframkvæmdum og víkur raunar að því að hugsanlega megi lækka einhver gjöld. En það er með býsna veiku orðalagi þegar verið er að tala um fjárhagslegan grunn, með leyfi forseta:

„Ef vel tekst til mætti jafnvel lækka aðra skattheimtu eða a.m.k. forðast sérstakar skattahækkanir til að fjármagna einstakar stórframkvæmdir.“

Varðandi innviðafélagið er farin afmarkaðri leið sem byggist á bestu erlendu fyrirmyndum, færeyskri fyrirmynd eins og raunar í þingsályktunartillögu um samgöngufélagið Þjóðbraut, en ekki síður danskri. Þetta ætti að gefa samfélaginu færi á að ráðast í stórar framkvæmdir eins og hugsunin hjá þingmanninum og öðrum var með Þjóðbraut, en ekki þannig að það væri fyrst farið í að leggja á veggjöld og síðan ráðist í framkvæmdir heldur kæmi það í tengslum við það að framkvæmdirnar yrðu teknar í notkun.