157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[23:39]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Varðandi þingsályktunartillögu um félagið Þjóðbraut þá má til sanns vegar færa að það hefði mátt tala skýrar um áform um lækkun annarra gjalda heldur en kannski textinn segir sem hv. þingmaður les hér upp. Ég er nú ekki með þingsályktunartillögutextann tiltækan. En það breytir því ekki að í öllu samhengi hvað mig varðar og ég held ég muni það rétt þegar hv. þm. Jens Garðar Helgason mælti fyrir tillögunni að þá var því haldið mjög skýrt til haga að þarna væri verið að horfa til þess að gera ákveðna eðlisbreytingu á innheimtunni þannig að menn stigju til baka með önnur gjöld á móti. Þá væri í raun verið að leita leiða til þess að auka hlut einskiptis- eða fáskiptisnotenda, þ.e. ferðamanna og þeirra sem nota samgöngukerfið lítið eða í stuttan tíma, en íslenskur almenningur sem væri daglegur notandi eða í öllu falli stórnotandi myndi lúta öðrum sjónarmiðum. Það er allt önnur hugsun sem þar kom fram heldur en í þessum áformum ef maður skoðar þau heildstætt; að ná fram markmiðum um að 1,7% af vergri landsframleiðslu verði heildargjaldtaka af akstri og ökutækjum án þess að það sé skilgreint hvað falli þar undir. Síðan eru það áform eins og þau birtast okkur núna um innviðafélagið þar sem mér sýnist svona ansi opinn krani vera teiknaður upp bæði í frumvarpinu og síðan í nefndarálitinu sem ég hraðlas í gegnum áðan, sem var birt í gær.