157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[23:41]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka svörin og taka undir að það birtist dálítið önnur hugsun. Það er nefnilega ofboðslega skýr hugsun í hugmyndinni á bak við samgöngufélagið Þjóðbraut. Með leyfi forseta:

„Gjaldtaka hefjist við valin samgöngumannvirki í eigu ríkisins svo fljótt sem verða má með það að markmiði að byggja strax upp sjálfbæran tekjustraum félagsins.“

Það á að hefja gjaldtöku strax og nýta tekjustrauminn síðan til framkvæmda. En í innviðafélaginu sem nú er kynnt er verið að fjármagna framkvæmdir fyrst, flýta þeim, og síðan hefja gjaldtöku þegar notendur geta farið að nota þær í tengslum við viðkomandi framkvæmdir. Þannig að þessar hugmyndir eru djarfar, ganga lengra. Það er vissulega talað um að ráðherra athugi hvaða skatta og gjöld á umferð, t.d. vörugjöld á ökutæki, mætti lækka eða fella niður á móti. En eins og tónninn er þá tek ég undir með þingmanninum að það er býsna varlega farið.

Varðandi innviðafélagið sem núna er kynnt þá er mikilvægt að skilja samspilið við samgönguáætlun sem við erum að ræða hér. Samgönguáætlun í raun skilgreinir hvaða verkefni koma til greina. Félagið er sjálfstætt en innan þess ramma og það eru þá gerðir samningar við ráðherra sem síðan eru kynntir þinginu. Þannig viljum við tryggja aðkomu þingsins og við viljum herða á því í frumvarpi um innviðafélagið. En markmiðið er kannski svipað og hugsunin á bak við Þjóðbraut, að flýta og fjölga stórum, flóknum verkefnum sem þannig komast á koppinn. Reynslan erlendis sýnir að þessu er býsna vel tekið þó að þetta geti verið umdeilt á meðan þetta er í undirbúningi. Við erum núna aðeins eitt þriggja eða fjögurra landa í Evrópu sem eru ekki með gjaldtöku í tengslum við umferðarmannvirki í einhverjum svona stórum stíl.