samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni seinna andsvar. Ætli það megi ekki reyna að draga saman megináhyggjur mínar af þeirri vegferð sem ríkisstjórnin er á núna þannig að ég óttast að heildargjaldtaka af akstri og ökutækjum sé u.þ.b. að springa í loft upp. Við höfum séð með hvaða hætti stjórnvöld hafa gengið fram og sá mekanismi sem var búinn til í kringum Betri samgöngur ohf. og samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og það vekur með mér ugg varðandi þá mynd sem við horfum mögulega á eftir tvö ár eða alla vega örlítið inn í framtíðina þar sem gjaldtakan verður orðin mjög íþyngjandi. Þegar við skoðum hversu grímulaust kerfið hefur lagst á fjölskyldubílinn og þá bíla sem nota stofnbrautakerfið og keyra um á götum borgarinnar finnst mér allt benda til þess að þetta verði svona enn ein leiðin til að gera það, ég ætla ekki að segja óbærilegt en svona mótdrægara en verið hefur, fyrir borgarbúa og landsmenn alla að geta notað þarfasta þjón nútímans, fjölskyldubílinn og atvinnubílinn, til að útrétta og fara ferða sinna. Ætli það sé ekki skortur á trausti sem er umtalsverður hvað mig varðar í garð áforma stjórnvalda í ljósi sögu síðustu ára. Fyrst stóra samgöngustoppið (Forseti hringir.) sem var rammað inn 2011 eða 2012 með aukafjárveitingum í Strætó, síðan samgöngusáttmálinn sem var undirritaður 2019 og það sem hefur fylgt í kjölfarið og með hvaða hætti Reykjavíkurborg hefur þrengt að einkabílnum, (Forseti hringir.) bæði með þrengingum gatna, fækkun bílastæða, hækkun bílastæðagjalda, stækkun gjaldsvæða og þar fram eftir götunum. Þetta er allt orsök þess að mér líður illa með að sjá ekki heildarmyndina (Forseti hringir.) hvað skatta og gjöld á akstur og ökutæki varðar og með hvaða hætti þetta allt saman rennur saman og virkar. — Afsakið, forseti.