Óyfirlesin bráðabirgðaútgáfa frá talgreini.

157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

afsal þingmennsku.

[10:30]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Forseta hefur borist bréf, dagsett 3. júní 2026, frá 3. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur. Bréfið er svohljóðandi:

„Með bréfi þessu segi ég af mér þingmennsku frá og með 3. júní 2026.

Virðingarfyllst,

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.“

 

Ég vil af þessu tilefni færa Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur þakkir fyrir störf hennar á Alþingi. Ég óska henni fyrir hönd okkar allra velfarnaðar í framtíðinni.

Við þingmennskuafsal Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur tekur Sigurður Örn Hilmarsson sæti á Alþingi og verður 11. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, Hildur Sverrisdóttir verður 3. þm. kjördæmisins og Jón Pétur Zimsen verður 8. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður.

Sigurður Örn Hilmarsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og býð ég hann velkominn til starfa.