157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

staða efnahags- og atvinnulífs.

[10:33]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Það fór ekki vel með verðmætasköpunarhaustið, ekki heldur með vaxtalækkunarvorið og ekki stefnir í að þetta verði atvinnusköpunarsumar hjá okkur. Á sama tíma hefur gengið afskaplega erfiðlega að ná tökum á ríkisfjármálunum. Ríkisútgjöld jukust meira en nokkru sinni fyrr og skattar og hin ýmsu gjöld hafa verið hækkuð. Í upphafi kjörtímabils auglýsti ríkisstjórnin eftir hugmyndum frá almenningi um hagræðingartillögur. Það hvarflaði að mörgum að þetta væri fyrst og fremst einhvers konar auglýsingabrella en þúsundir, tugþúsundir tel ég, tillagna bárust ríkisstjórninni. Hún tók sér tíma í að vinna úr þessu og sagðist svo ekki ætla að notast við pólitískar tillögur, sem er auðvitað sérkennilegt fyrir ríkisstjórn sem þarf að hagræða. Engu að síður var haldinn blaðamannafundur og 57 hagræðingartillögur ríkisstjórnarinnar kynntar. Nú kemur á daginn, að öllum þessum tíma liðnum, að fimm þeirra hefur verið hrint í framkvæmd og það er ekki einu sinni hafin vinna við u.þ.b. helminginn af þeim.

Maður getur ekki annað en velt fyrir sér, frú forseti: Hvers vegna er þetta svona? Ekki bara þetta árangursleysi heldur líka, að því er virðist, bara skortur á vilja til að reyna að standa við kosningaloforðin og ná tökum á efnahagsmálunum á Íslandi, vöxtum og verðbólgu. Hvers vegna? Er það vegna þess að ríkisstjórnin er bara með hugann við Evrópusambandið? Má allt reka á reiðanum fram að því? Hvers vegna bregst ríkisstjórnin ekki við síversnandi stöðu í íslensku efnahagslífi?