157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

siðareglur ráðherra.

[10:51]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég hef heyrt þessa gagnrýni á framsetningu um niðurstöður skýrslunnar. Ég vil kannski byrja á því að segja að það er alveg rétt að það var ekki og er ekki verkefni skýrsluhöfunda að gera tæmandi samanburð á því hver kostnaður og ábati er af því að halda úti sjálfstæðum gjaldmiðli, enda liggur það alveg fyrir að þetta er alltaf einhvers konar hagsmunamat. Þessi skýrsla er ekki og mun aldrei, frekar en fyrri skýrslur, vera einhver stóridómur eða endanlegur úrskurður um það. Enda er hún m.a. gerð í aðdraganda þess að við erum að velta fyrir okkur hvort við eigum að fara í samningaviðræður við Evrópusambandið, ekki ganga inn í Evrópusambandið eða taka upp evru eftir 29. ágúst. Það er ekki þar með sagt að það séu engar niðurstöður í þessari skýrslu eða skýrar ályktanir sem er hægt að draga úr henni. Mér finnst það bara skipta máli í samhengi við þá spurningu sem ég er spurð hér í tengslum við siðareglur. Auðvitað snýst þetta um hvernig hlutirnir eru lagðir upp og það kann vel að vera að sumir vilji draga sterkar fram ákveðna hluti í skýrslunni en aðrir. Það breytir því ekki að það kemur skýrt fram í skýrslunni, forseti, að kostnaður við sjálfstæðan gjaldmiðil sé verulegur. Það kemur líka fram að hann kunni að vera meiri en sá ábati sem því fylgir. Þetta má sjá bæði í lokaorðum skýrslunnar þegar er verið að tala um aðlögun hagkerfisins sem fylgir því að geta verið með gengisfellingar en líka kostnaðinn af slíku. Það er eitt að geta tekist á við stök áföll en við vitum að yfir lengri tíma er líka gríðarlegur viðskiptalegur kostnaður sem fylgir því. Við sjáum t.d. þá stöðu víða í hagkerfinu þegar kemur að rekstri fyrirtækja að þau geta ekki gert plön fram í tímann. Á vinnumarkaði skortir ákveðið traust þegar kemur að gengismálum. Þetta er alveg vitað mál og því er velt upp í þessari skýrslu. Það er líka talað um að það liggi alveg fyrir að krónan magni uppsveiflu. Ég meina, ég get vitnað í svo marga þætti. Aðalatriðið í þessu er að skýrslan er vönduð, þetta er traustur grunnur fyrir mikilvæga umræðu um kosti og galla. Þetta á að vera umræða um kosti og galla. (Forseti hringir.) Síðan getur fólk auðvitað haft mismunandi skoðanir á því hversu djúpt í árinni er tekið. En ég tel að engu leyti að þetta snerti þær siðareglur sem þingmaður er hér að ræða. (Forseti hringir.) Í lok dags er þetta bara ákveðið mat á því hvort vegur þyngra.