157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

ráðstöfun varaflugvallargjalds.

[10:56]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Sá sem hér stendur er með breytingartillögu við samgönguáætlun um að flýta tveimur framkvæmdum, annars vegar aðflugsljósum inn á braut 19 á Akureyrarflugvelli þannig að sú framkvæmd komi inn á fyrsta tímabil, þá hefjist framkvæmdir 2027 og klárist 2028, í stað þess að vera á öðru tímabili. Síðari tillagan í breytingartillögunni er að framkvæmdum við Egilsstaðaflugvöll, þar sem allt er tilbúið og búið að skipuleggja, skipulagsmálin eru klár og hægt að hefja framkvæmdir þess vegna innan mánaðar, verði flýtt og verði framkvæmdar á þremur árum í staðinn fyrir fimm ár eins og gert er ráð fyrir í samgönguáætlun, sem er furðuleg ráðstöfun miðað við stærð verkefnisins, að dreifa þessu yfir þetta langan tíma. Þetta er framkvæmd sem er auðveldlega hægt að klára á 30 mánuðum.

Það sem ég vil leggja gríðarlega áherslu á, og ég vona að vilji þingsins sé sá sami og hér á síðasta kjörtímabili, er að í júní 2023 voru samþykkt hér á þingi lög um varaflugvallargjald sem eru að safna sirka 1.500–1.600 millj. kr. á ári til framkvæmda á þremur alþjóðaflugvöllum sem eru hluti af innanlandsflugvallakerfi landsins; Akureyrarflugvöllur, Egilsstaðaflugvöllur og Reykjavíkurflugvöllur. Keflavíkurflugvöllur er síðan sér, hjá Isavia. Það var skýr vilji til þess að þetta fjármagn myndi nýtast að fullu til framkvæmda við alþjóðaflugvellina og það var skilningur á því, eftir að gamla varaflugvallargjaldið var lagt af 2011 og fjármögnun kerfisins hrundi, að við værum að fara í nýja vegferð sem yrði sjálfbær og varaflugvallargjaldið myndi nýtast að fullu til framkvæmda við alþjóðaflugvallakerfið. Í þessari samgönguáætlun er ekki verið að fara með allt fjármagnið inn í það sem löggjöfin um varaflugvallargjaldið gerir ráð fyrir.

Ég vil höfða til þingheims og ráðherra og meiri hlutans að breyta þessu núna í samgönguáætlun til að koma þessu í það form sem löggjöfin um varaflugvallargjaldið gerir ráð fyrir sem var samþykkt hér í þinginu fyrir þremur árum. (Forseti hringir.) Það er mikilvægt að fá þetta fram og við þekkjum flest hvað gerðist 26. febrúar síðastliðinn.