ráðstöfun varaflugvallargjalds.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Ég hef kynnt mér tillöguna sem ég held hér á. Ef ég skil þessa tillögu hv. þingmanns rétt þá er hann að færa til fjármagn sem ætlað er í uppbyggingu á innanlandsflugvöllum í töflu 4 í samgönguáætlun. Það er skiljanlegt að vilja hraða framkvæmdum eins og kostur er en allar framkvæmdir sem tilgreindar eru í áætluninni eru mikilvægar fyrir hvern landshluta að sjálfsögðu. Hins vegar virðist hv. þingmaður með breytingartillögunni vera að færa fjármagn frá öðru tímabili áætlunarinnar yfir á fyrsta tímabil áætlunarinnar þegar kemur aðflugsljósum á Akureyrarflugvelli. Þetta virkar einfaldlega ekki þannig. Þetta fjármagn sem hér er verið að tala um er ekki til staðar á fyrsta tímabilinu. Svo einfalt er það. Eðli málsins samkvæmt er það bundið við fjármálaáætlun, fjármálaáætlun miðað við fimm ár, 2026–2030. Til að taka framkvæmd sem er árið 2031 yfir á fyrsta tímabil þurfum við að auka útgjöld á því tímabili.
Síðari tillaga hv. þingmanns er um tilfærslu á fjármagni við framkvæmdir á nýrri akbraut og flughlaði á Egilsstaðaflugvelli. Þar er um tilfærslu á fjármagni að ræða innan fyrsta tímabilsins sem er búið að deila niður á fimm ár. Núna á að fara að gera þetta á þremur árum og hámark hvers árs er tilgreint á hverju ári, er í ramma. Það er vegna fjárútláta á viðkomandi sviði, þannig að út frá fjármálaáætlun og líka fjárlögum á hverjum tíma þá myndi þetta ekki ganga upp. Þarna er einfaldlega verið að fara út fyrir fjárlög og fjármálaáætlun og fjárlög ekki virt. Það er það sem við erum að gera með fullfjármagnaðri samgönguáætlun, að fara eftir þeim römmum sem okkur eru markaðir í fjármálaáætlun. Eins mikið og ég myndi vilja hraða þessum framkvæmdum þá er ekki rými til þess í útgjöldum ríkissjóðs. Ég vona að þetta svari spurningunni.