ráðstöfun varaflugvallargjalds.
Frú forseti. Þetta er einmitt vandamálið, hæstv. innviðaráðherra skilur ekki málið. Það er til staðar löggjöf um fjármögnun kerfisins. Það er rukkað inn. Það er gjaldtaka, 200 kr. á fluglegg, til þess að framkvæma uppbyggingu og viðhald á varaflugvöllum landsins. Fjármagnið er til staðar og löggjöfin sem var samþykkt í júní 2023, fyrir rétt um þremur árum, var mjög skýr um það að það fjármagn sem kæmi af þessu inn í ríkissjóð færi hundrað prósent í þetta. Það er enn til staðar misskilningur hjá hæstv. ráðherra á því í hvað fjármagnið á að fara. Það er þessi skilningur sem er svo erfitt að ná fram í þessu máli; þetta er ekki í fyrsta skipti sem sá sem hér stendur er að reyna að vekja athygli á þessu. En málið er ótrúlega skýrt, að varaflugvallargjaldið, það sem er rukkað inn, gjaldtakan, fari í það sem löggjöfin gerir ráð fyrir. Þetta er ekki flóknara. (Forseti hringir.) Látum vilja þingsins ráða för en ekki embættismenn framkvæmdarvaldsins. Ég kalla eftir stuðningi þingsins við þessa breytingartillögu þegar hún verður lögð hér fyrir þingheim.